| Mánudagur | 09.00 – 17.00 |
| Þriðjudagur | 09.00 – 17.00 |
| Miðvikudagur | 09.00 – 17.00 |
| Fimmtudagur | 09.00 – 17.00 |
| Föstudagur | 09.00 – 17.00 |
| Laugardagur | 11.00 – 14.00 |
Því þú ert ekki eins og allir aðrir
Hjá Schmidt Akureyri tekur Harpa vel á móti þér og veitir þér faglega ráðgjöf við val á nýja draumaeldhúsinu þínu.
Nýtt eldhús? Hjá Schmidt Akureyri finnur þú mikið úrval af sérsniðnum eldhúsinnréttingum, baðinnréttingum og fataskápalausnum með fjölbreyttum samsetningarmöguleikum.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af útfærslum, viðartegundum, litum og höldum, svo þú getir skapað lausn sem hentar þínum stíl og þörfum.
Þú finnur okkur að Sjafnargötu 1b á Akureyri.
Í glæsilegum sýningarsal okkar getur þú kynnt þér hluta af fjölbreyttu vöruúrvali okkar og fengið faglega ráðgjöf frá Hörpu við að finna réttu lausnina fyrir heimilið þitt.




SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR FYRIR BAÐHERBERGI, ELDHÚS & FATASKÁPA
Hjá Schmidt bjóðum við upp á fjölbreytt úrval af bæði klassískum og nútímalegum eldhúsinnréttingum og aðstoðum þig við að velja liti, efni og hönnun fyrir nýja eldhúsið þitt.
Við bjóðum upp á allt að 24 mismunandi liti fyrir innra byrði skápanna okkar ásamt fjölbreyttu úrvali efna fyrir skápaframhliðar.
Komdu í heimsókn í verslun okkar að Sjafnargötu 1b á Akureyri og kynntu þér nýstárlegar lausnir fyrir eldhús, baðherbergi, fataskápa og stofurými.
Starfsfólk okkar er ávallt tilbúið að veita þér faglega ráðgjöf svo við getum í sameiningu fundið hina fullkomnu hönnun fyrir draumaeldhúsið þitt.
HEILDSTÆÐAR LAUSNIR FYRIR HEIMILIÐ
Hjá Schmidt leggjum við áherslu á að skapa heildstæðar innréttingalausnir þar sem þú hefur áhrif á hvert einasta smáatriði.
Við vitum hversu mikilvægt það er að heimilið endurspegli þinn persónulega stíl og sögu fjölskyldunnar.
Þess vegna bjóðum við í verslun okkar að Sjafnargötu 1b á Akureyri upp á fjölbreytt úrval sveigjanlegra innréttingalausna sem hægt er að sérsníða að þínum óskum og þörfum.
Þannig getur þú skapað samræmi á milli eldhúss, stofu, baðherbergis og fataskápa, svo að heimilið allt fái fallegt, heildstætt og vandað yfirbragð.
BAÐHERBERGI
Í verslun okkar á Akureyri finnur þú einnig fjölbreytt úrval innréttinga fyrir baðherbergið. Lausnir okkar einkennast af nútímalegri hönnun, glæsileika og náttúrulegu yfirbragði. Við leggjum metnað okkar í að finna hina fullkomnu lausn fyrir þig og heimilið þitt.
Hvort sem þú ert að hanna glænýtt baðherbergi eða endurnýja það sem fyrir er, aðstoðum við þig við að skapa fallegt og hagnýtt rými með sérsniðnum lausnum sem henta þínum óskum og þörfum.
INNRÉTTINGAR
Schmidt býður upp á miklu meira en bara eldhús. Við hönnum sérsniðnar innréttingar og geymslulausnir fyrir öll rými heimilisins, þar sem litir, efni og hönnun mynda samræmda heild.
Allar innréttingar eru framleiddar eftir nákvæmum millimetramælingum og sérsniðnar að þínum þörfum. Þannig getur þú skapað fallegt og heildstætt yfirbragð á heimilinu með lausnum sem nýta rýmið til fulls, frá gólfi til lofts og frá vegg til vegg.
Við hlökkum til að hjálpa þér að láta drauma þína um fallegt heimili rætast!