Neðri skáparnir hjá Schmidt eru u.þ.b. 10% hærri en samkvæmt norrænum stöðlum.
Má þar nefna örfá atriði eins og glerhliðar, gúmmímottur, mjög háar hliðar, fullt útdrag og ljúflokur. Auk þess þola þær allt að 65 kílóa álag. Öll eldhúsáhöldin verða mjög aðgengileg sem skapar mjög góða yfirsýn.
Þar fyrir utan bjóðum við upp á fullt af æðislegum aukahlutum fyrir skúffurnar þínar, svo sem sniðuga lausn á ruslatunnu, sem opnast með fótstigi þegar hendurnar eru fullar, stillanleg hólf, hnífaparaskúffu svo þú getir geymt hnífapörin á sem bestan hátt, körfuskúffu þar sem hægt er að taka körfuna af hjörunum, þannig að þú getir haft hana við hliðina á þér á meðan þú notar mismunandi hluti úr henni og síðast en ekki síst hólf og hliðar til að deila skúffunum niður.
Kíktu inn og finndu muninn í þinni Schmidt verslun.
Neðri skáparnir hjá Schmidt eru u.þ.b. 10% hærri en samkvæmt norrænum stöðlum.
Með Jumbo-línunni okkar færð þú 72 sm djúpa skápa. Það gefur þér ekki einungis meira vinnupláss heldur einnig meira geymslupláss í skápunum.
Með nýju onix-skúffunum hefur Schmidt fundið upp fegurð eftir málum… hægt er að sníða allt eftir notandanum, að innan og utan. Með 32 liti að velja úr, hefur þú möguleika á að velja skúffur eftir þínum persónulega smekk. Skapaðu fullkomna heild með skúffum í sama lit og efnisvali sem restin af eldhúsinu, eða skapaðu spennandi stílbrot.
Made to measure veitir bestu nýtingu rýmisins og mesta geymslupláss sem völ er á – og fæst fyrir eldhús, baðherbergi, fataskápa og innréttingar heimilisins.
Þú færð extra þykkar hliðar (19 mm), framhlið sem er lituð í gegn og lokaða kanta allstaðar! Hillurnar læsast á sinn stað af hilluberum úr málmi sem heldur þeim föstum, stöðugum og öruggum.
Við borum aðeins göt sé þeirra þörf. Svo þú getur kvatt öll óþarfa götin sem þú þarft ekki á að halda, og heilsað upp á flottar flatar hliðar innan í skápunum.
Þú færð 10 ára fulla ábyrgð á einingum og 25 ára ábyrgð á skúffum, útdraganlegum brautum og lömum, sem eru þolprófaðar fyrir 200.000 hreyfingar.
Hægt er að raða saman öllum litunum okkar út í hið óendanlega, þannig getur þú látið eldhúsið passa þínum persónulega smekk og stíl. Þú getur valið að hafa sama lit innan í skápana og er á framhliðunum eða valið að para saman spennandi andstæður.
Má þar nefna örfá atriði eins og glerhliðar, gúmmímottur, mjög hátt bak, fullt útdrag og ljúflokur. Auk þess þola þær allt að 65 kílóa álag.
Allur okkar viður er PEFC og NF ENVIRONNEMENT merktur, þannig höfum við tryggt að hann komi úr grænni og sjálfbærri skógrækt. Verksmiðjurnar okkar eru ISO 14001 vottaðar, sem tryggir að vörurnar okkar hlífi umhverfinu sem best.
– Þannig er uppsetningin mjög stöðug. Sökkullinn lokast þétt við gólfið án lista og þú þú sleppur við samskeyti, meðal annars við uppþvottavélina.