• Um Schmidt
  • Eldhústæki
  • Vörulistar
    • Við höfum samband
  • Við höfum samband
  • ELDHÚS
    • Eldhús og eldhúsinnréttingar
      • Nútímalegt eldhús
      • Klassísk eldhús
      • Retro Eldhús
      • Svart eldhús
      • Hvítt eldhús
      • Eldhús eyja
      • Alrými
      • Colormix
    • Borðplötur
      • Eldhúsborðplötur
    • Eldhússkápar
      • Eldhússkápar
      • Veldu á milli 24 mismunandi lita á skápa
      • Höldur fyrir eldhússkápa
    • Innblástur
      • Eldhúshugmyndir
      • Eldhústilboð
  • BAÐHERBERGI
  • FATASKÁPAR
    • Fataherbergi
    • Fataskápur Með Lamahurðum
    • Fataskápar Með Vængjahurðum
    • Fataskápar Með Rennihurðum
  • INNRÉTTINGAR
    • FORSTOFA
    • SVEFNHERBERGI
    • STOFA
    • SKRIFSTOFUR
    • Hillukerfi fyrir herbergi og stofu
    • BÚRSKÁPAR
  • Kostir Schmidt
  • Um Schmidt
  • Eldhústæki
  • Vörulistar
    • Við höfum samband
  • Við höfum samband

Forside / Eldhús og eldhúsinnréttingar / Alrými

Forside / Eldhús og eldhúsinnréttingar / Alrými

Nýtt eldhús alrými? Fáðu innblástur og ráðleggingar að innréttingum opins eldhúss

Deymir þig um að fá eldhús alrými, þar sem eldhúsið og stofan tengjast og þar sem er pláss fyrir alla fjölskylduna? Með eldhús alrými getur þú innréttað eldhúsið og stofuna í sama rými þar sem er pláss fyrir marga kokka og notalega samveru með fjölskyldunni.

Það er ekki erfitt að skilja að sú leið að hafa opið eldhús er valin á mörgum heimilum. Við verjum mörgum klukkutímum í eldhúsinu og einmitt í eldhús alrými hefur þú möguleikann á því að sameina matreiðslu og samverustund fjölskyldunnar. Þetta opnar flóðgátt af innréttingamöguleikum og þú skapar þitt persónulega og huggulega rými sem passar þörfum fjölskyldunnar.

En þegar svona margt er í boði, hvar er þá rétt að byrja? Við höfum safnað saman myndum, mismunandi hönnun og mikilvægum ráðum sem vonandi veita þér innblástur og hjálpa þér af stað með þína innréttingu fyrir eldhús alrými.

Klassísk eldhús     Nútímaleg eldhús

Litla eldhúsalrýmið

Hvort möguleikinn á eldhúsalrými sé fyrir hendi veltur mikið á stærð íbúðarinnar, og hvernig rýmin eru staðsett innan hennar. En lítið eldhús þarf ekki endilega að setja miklar skorður á því hvort þú getir skapað drauma eldhúsið þitt.

Hjá Schmidt búum við að margra ára reynslu af því að innrétta eldhús í öllum stærðum. Með innréttingalausnunum okkar færð þú sem mest út úr nýtingu plássins, betri yfirsýn og betri vinnuaðstöðu í eldhúsinu þínu. Við erum þar af leiðandi einnig með réttu lausnina fyrir þig sem ert að fara af stað með að innrétta eldhús sem er smærra í sniðum.

Hér að neðan sérð þú tvö dæmi um lítil eldhúsalrými:

NEBRASKA

PORTLAND

Litla ljósa eldhúsið

Undirstrikaðu hvíta eldhúsið þitt með borðplötu úr við

Eikarborð með pottum

Hvítt eldhús virkar léttara og þar sem rýmið er þröngt virðist það stækka. Ef þig langar í skandinavískt og náttúrulegt útlit getur þú parað hvítt eldhús með borðplötu úr við til að skapa fallegar andstæður. Þú getur dregið fram andstæðurnar í einfalda hvíta eldhúsinu og grófu borðplötunni með fallegum plöntum eða kryddjurtum. Þannig fær þessi tímalausa hvíta hönnun hlýjan blæ og eldhúsið þitt meiri stíl og persónuleika.

FÁÐU TILBOÐ Í ÞITT ELDHÚS

– Sérsniðið eftir heimilinu og þínum stíl!

FÁ TILBOÐ
FINNDU INNBLÁSTURINN Í ELDHÚSBÆKLINGI OKKAR

– Fáðu innblástur og skoðaðu það nýjasta

SKOÐA BÆKLING
BÓKAÐU FUND ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU

Leyfðu starfsfólki okkar að sýna þér fjölda útfærslna og samsetningarmöguleika.

BÓKAÐU FUND

Stóra eldhúsalrýmið

Hafir þú aftur á móti nóg pláss til þess að sameina eldhús og stofu í eitt, eru möguleikarnir margir. Þá getur verið erfitt að átta sig á því hvar er best að byrja, og hvernig maður innréttar þetta stóra rými á sem bestan hátt.

Stórt eldhús býður upp á pláss til fullt af skápum og miklu borðplássi og það getur maður alltaf nýtt í eldhúsi. Reyndu þess vegna að nýta þetta mikla pláss með stórum skápum og eldhúseyju sem veitir aukið vinnupláss. Á sama tíma er einnig pláss fyrir langt borðstofuborð þar sem öll fjölskyldan getur borðað og haft það notalegt saman.

Hér að neðan getur þú fengið innblástur fyrir stórt eldhús alrými:

ARCOS EDITION

LOFT 2

Skapaðu notalegt opið eldhús

Vanalega sér maður opnu eldhúsin í nýbyggingum, en þau eru einnig orðin vinsæl lausn þegar fólk gerir upp íbúðir. Nýtt eldhús er frábær leið til að gera heimilið huggulegra og það er nákvæmlega það sem opið eldhús veitir möguleika á.

Hér höfum við safnað saman nokkrum góðum ráðum fyrir þig, sem dreymir um opið eldhús:

  • Eldhúsið þarf að passa þínum venjum – Möguleikarnir eru margir. Áttaðu þig á því hvað þér finnst mikilvægast, hvort það sé mikið vinnupláss, frábær tæki, mörg sæti eða annað sem þú vilt leggja mesta áherslu á.
  • Eldhús alrými kallar á pláss – Það þarf að vera pláss á heimilinu fyrir opna eldhúsið. Hugsaðu út fyrir kassann og hugleiddu vel hvernig þú getir nýtt plássið sem best.
  • Reyndu að komast hjá lélegri hljóðvist – Opin eldhús eiga að vera þannig að fólk geti setið og spjallað saman. Mundu þessvegna að hugsa innréttinguna einnig út frá hljóðvist.
  • Góð og hljóðlát útsogun – Á sama tíma skaltu einnig hugsa hvernig hluti þú vilt hafa í eldhúsinu þínu. Hér gæti einfaldur háfur átt vel við.
  • Gott er að hafa ávalt í huga að hafa nægilegt borðpláss – Opið eldhús býður upp á möguleika á að skapa auka borðpláss svo það sé auðvelt að elda saman og hafa það notalegt.

Til að gefa þér nokkrar hugmyndir fyrir nýja eldhúsið þitt höfum við safnað saman nokkrum vel skipulögðum eldhús alrýmum í mismunandi stærðum og gerðum. Láttu þær veita þér innblástur og gerðu eldhúsdrauminn þinn að veruleika.

Opna eldhúsið með mikla borðplássið

Opið eldhús hefur oftar en ekki pláss fyrir eldhúseyju, og það býður upp á marga nýja möguleika á geymslu- og vinnuplássi. Gerðu þess vegna endilega ráð fyrir eyju þar sem þú getur sameinað auka borðpláss og gott geymslupláss, sem er eitthvað sem maður getur alltaf nýtt.

Lestu einnig: Eldhúseyja: Skapaðu notalegan samkomustað með eldhúseyju

Hjá Schmidt bjóðum við bæði upp á klassísk og nútímaleg eldhús alrými með eyju. Þú getur séð tvö mismunandi dæmi af hvoru tveggja hér fyrir neðan:

ARCOS 5

SCARLETT MICRON

Scarlett eldhúslínan veitir þér innblástur fyrir sumarbústaðinn

Fáðu verð í nýja eldhúsið þitt

Verðið á nýju eldhús alrými, er alltaf reiknað út frá hverri og einni íbúð og eldhúsóskum hvers og eins. Þess vegna getum við fyrst gefið þér nákvæmt verð þegar við höfum fengið málin á rýminu og vitum þarfir þínar. Þér er velkomið að hafa samband við Schmidt verslun nálægt þér til að heyra meira.

Sjáðu fyrir þér drauminn um að opna eldhúsið og stofuna þína upp með því að bóka fund án endurgjalds og skuldbindinga eða kíktu við í næstu Schmidt verslun. Við hjálpum þér með að sameina þessi tvö rými í eitt svo það passi stílnum þínum og þörfum.

FÁÐU TILBOÐ Í ÞITT ELDHÚS

– Sérsniðið eftir heimilinu og þínum stíl!

FÁ TILBOÐ
FINNDU INNBLÁSTURINN Í ELDHÚSBÆKLINGI OKKAR

– Fáðu innblástur og skoðaðu það nýjasta

SKOÐA BÆKLING
BÓKAÐU FUND ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU

Leyfðu starfsfólki okkar að sýna þér fjölda útfærslna og samsetningarmöguleika.

BÓKAÐU FUND
    • Eldhús og eldhúsinnréttingar
    • Klassísk eldhús
    • Nútímalegt eldhús
    • Innréttingar fyrir baðherbergi
    • Fataskapar
    • Innréttingar
    • Forstofa
    • Svefnherbergi
    • Stofa
    • Skrifstofa
    • Hillukerfi
    • Búrskápar
    • Heimilistæki
    • Hafðu samband við næstu verslun fyrir upplýsingar um vöruúrval.

    © 2023 SCHMIDT Groupe SAS

    linkedin