Skúffur og skápa er hægt að framleiða upp á millimeter til að nýta allt plássið – og fást í eldhús, baðherbergi, svefnherbergið og annarsstaðar.
Ekki lengur lítil baðherbergi heldur nóg af plássi! Þessi ótrúlega flotti háglanspóleraði hvíti litur gerir rýmið stærra, leikur með ljósið og undirstrikar fegurð marmarans. Rýmið verður létt og ljóst. Allt lítur út fyrir að hafa fundið sinn stað og ekkert er handahófskennt. Við höfum með ráðgjöfum okkar náð að greina rýmið og hvaða samsetningar passa þar inn og lífstílnum okkar – allt upp á millimeter.
Með því að blanda saman yfirborðsflötum, litum og handföngum getur þú sérsniðið baðherbergið þitt eftir þínum persónulega smekk og stíl heimilisins. Á það að vera einlitt, glansandi eða matt, með viðaráferð eða í öðru náttúrulegu útliti? Finndu þinn eigin stíl í úrvali okkar af litum, efni, áferðum og hönnun. Litina okkar má setja saman út í hið óendanlega svo þú getur látið baðherbergið passa nákvæmlega fyrir þig.
Komdu við í sýningarsalnum okkar og sjáðu ótrúlegt úrval af litum og samsetningum.
Finna verslunLíttu við í sýningarrými nálægt þér.
– Sjáðu það nýjasta í baðherbergjum
Leyfðu starfsfólkinu okkar að sýna þér allar útfærslurnar og samsetningarmöguleikana.
Skúffur og skápa er hægt að framleiða upp á millimeter til að nýta allt plássið – og fást í eldhús, baðherbergi, svefnherbergið og annarsstaðar.
– að innan sem utan og yfir 1000 litasamsetningar á skápunum þínum, án aukakostnaðar.
Glerhliðar, gúmmímottur, aukin hryggjarhæð, aukin brautarlengd, ljúflokur, til að nefna fáein atriði. Þar að auki þola skúffurnar okkar upp að 65 kílóa þunga.
Þú færð þykkari hliðar (19 mm), gegnlitaða kanta og lokaða kanta allstaðar! Hillurnar smella á sinn stað með hilluprófílum úr stáli sem halda þeim föstum. Öruggt og traust.